Er ég klikkuð??
Forsaga málsins er sú að við vorum út í eyju um helgina og ég var búin að vera með frekar mikinn bjúg í fótunum og höndum og allstaðar, Vera sagði að ég liti út eins og Shrek :S. Allar kellingarnar út í eyju voru búnar að hræða mig þvílíkt mikið að ég yrði nú að fara til læknis og svona um leið og ég kæmi heim, því þetta væri alvarlegt. Ég var náttúrulega bara í þvílíku sjokki, Einar hringdi upp á læknavakt og talaði við lækni þar og hún róaði okkur nokkuð en sagði samt að ef þetta myndi ekkert lagast þá ættum við að koma á vaktina....svo fór ég að vinna í gær, kem heim og bjúgurinn er ennþá rosalega mikill og lagast lítið við að liggja með lappirnar upp í loft, svo við ákváðum að skella okkur á læknavaktina. Þar biðum við í góðan hálftíma eftir lækni og borguðum 2200 kall. Svo kallar læknirinn okkur inn til sín og ég sýni honum á mér shrek fæturnar....og hann bara já þú ert ólétt ég alveg no shit...(ekki alveg svarið sem ég gaf samt) það er ástæðan og ég alveg já en er þetta ekkert mikið eða...hann bara neibb, takk fyrir komuna...jahá þarna hafði það :S
Mér hefur sjaldan liðið eins mikið eins og paranoid óléttri kellingu.....gæinn vildi ekki einu sinni mæla blóðþrýstinginn fannst það sko algjör óþarfi og skyldi ekkert hvað ég var að gera þarna....
Þannig að ég kom út eftir tvær mínútur og leið alveg eins og fávita og var 2200 krónum fátækari....btw síðast þegar ég fór á læknavaktina þá kostaði að ég held bara 1500 kall...sem segir kannski soldið um það hvað ég fer oft til læknis hehhe
En að öðru leyti þá líður mér svo sem ágætlega, er reyndar búin að vera kvefuð í svona tvo mánuði og er ekkert að losna við það og svo þessi skemmtilegi bjúgur sem er rosalega góður fyrir sjálfstraustið....mæli með þessu hahah
Komin 33 vikur þannig að þetta fer allt að styttast...
Miss paranoid kveður að sinni
verður sumarbarn eins og mamma sín. Við erum búin að fara tvisvar í mæðraskoðun og í sónar og svona og allt lítur bara rosalega vel út og við erum alveg ótrúlega spennt fyrir nýja hlutverkinu 